Árbæjarskóli 10bekkur 1998
24.12.2006 18:18:12 / 10_b_1998

Hátíðarkveðja

Ég vildi óska ykkur öllum gleðilegra jóla vonandi hafið þið það sem allra best um hátíðarnar og einig segi ég gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt það gamla og góða

:D

Knús knús

Erla S


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 22:01:17 / Eva R

MYNDIR!!!

Ég ætla nú að byrja á því að þakka fyrir frábæra, athyglisverða og skrautlega kvöldstund :lol:

Af myndunum að dæma skemmtu flestir sér vel, ég veit að það eru allir spenntir að sjá, þannig að hér fyrir neðan er linkurinn á myndirnar. Þetta eru samt ekki nærri því allar myndirnar sem fara á netið, Erla lumar held ég á um 100 myndum í viðbót sem eiga að fá að flakka með... En þangað til getið þið skemmt ykkur yfir þessum :haha: 

http://s100.photobucket.com/albums/m26/10bekkur98/reunion2006/


» 23 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 12:54:20 / 10_b_1998

Jæja bara á morgunn

Jæja þá er bara dagurinn sem við höfum beðið eftir loksins að koma

Ég ákvað að koma ekki með kynningu á sjálfri mér fyrr en bara annað kvöld þegar þið öll eruð komin

Ég hugsa að við Eva verðum komnar smá fyrr til að vera nú komnar þegar þið öll yndislega fólkið komið til að bjóða ykkur velkomin .....:haha:

En mikið hlakka ég nú til að sjá ykkur og munið svo að allt er gott í hófi ....

sjáumst hress

Erla S og Eva

:haha::haha::haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 19:41:44 / Eva R

4 dagar

Jæja! Eru ekki allir búnir að vera duglegir að pumpa í ræktinni, liggja í ljósabekkjum og skella sér í strípur fyrir laugardaginn?

Hehehe, smá grín ;) En já, 4 dagar krakkar mínir, það styttist í þetta!! Ég er alla vega orðin rosa spennt að hitta ykkur öll aftur... eða vonandi ykkur flest. Auðvitað einhverjir sem komast ekki...

Hef ekkert meira að segja, langaði bara að koma með smá færslu hérna inn, vantaði einhverja hreyfingu hérna :lol:

Sjáumst á laugardaginn!! :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 11:52:28 / Eva R

Daddaraddada

Jæja! Við sáum fram á rosalegan kostnað við að senda póst á alla í árgangnum og þar sem þetta á ekki að kosta neitt ákváðum við í staðinn að senda bara sms á línuna. En því miður gengur okkur ekki að finna númer hjá öllum, þannig að það væri frábært ef að þeir sem vita af þessu og hafa fengið sms myndu láta orðið berast :)

Það var ekki fleira að sinni, hlakka til að sjá ykkur öll hress og kát 14.okt! :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 21:08:20 / 10_b_1998

Loksins loksins

Þá er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir…

Reunion 

Úr Árbæjarskóla:haha:

Okkar var farið að finnast tímabært að halda annað reunion fyrir okkur sem vorum í 10.bekk í Árbæjarskóla ´97-´98 og alltof löng bið í 10 ára útskriftarafmælið okkar sem verður vorið 2008, þannig að við ákváðum að hóa saman í smá upphitunarpartý núna í haust.

Partýið verður á skemmtistaðnum Klúbbnum, Stórhöfða 17 laugardaginn 14.okt. Húsið opnar fyrir okkur klukkan 20:00 og verður tilboð á barnum handa okkur til klukkan 0:00.

 

Stór bjór: 450kr

Bjór og skot: 800kr

Rautt og hvítt: 500kr glasið

 

Vonandi sérð þú þér fært að mæta og hlökkum við til að sjá þig! J

Stuðkveðjur, Erla S.(gsm 663-9075) og Eva Rós (gsm 695-6296)





 










» 28 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 22:18:47 / Eva R

Hvað segiði?

Jæja krakkar. Þá er spurning hvort að það fari ekki að styttast í þetta? Við Erla erum nú svo bissí konur að undirbúningurinn hefur aðeins tafist, en þetta er allt í vinnslu, því get ég lofað ;) Nú samkvæmt könnunni hérna til hliðar þá vilja flestir að þetta verði haldið bara næsta vor... Nú einnig samkvæmt sömu könnun þá hafa núna um 200 manns kosið og grunar mig að einhverjir hafi kosið oftar en einu sinni, þar sem við erum ekki nema um 160 manns og örugglega ekki einu sinni helmingur sem veit af þessari síðu :haha: 

Þannig að ég var að pæla hvort þið vilduð ekki bara vera svo yndisleg að kommenta undir nafni með óskum ykkar um þetta? :lol:

Mín pæling er sú að ef þið viljið bíða fram á næsta vor er þá ekki alveg eins gott að bíða eitt ár í viðbót þegar við eigum 10 ára afmæli og hafa þetta grand?

Persónulega langar mig að hafa þetta núna fljótlega, sérstaklega þar sem ég missti af síðasta reunioni, en ég get líka alveg beðið eftir 10 ára afmælinu ef flestir eru á þeim buxunum?

En það væri samt auðvitað gaman að hafa smá reunion partý núna fljótlega og svo grand partý á 10 ára afmæli...? Eða hvað..?

Hvað finnst ykkur? Komment takk! :)


» 20 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 12:28:22 / 10_b_1998

Allir Bekkir komnir inn

Hæhæ

Jæja þá eru loks allir bekkir komnir inn og getur fólk skoðað þá sem þeir voru með í bekk... :D

En ég hef ákveðið að láta inn könnun með dagsetningum og leyfa ykkur svona að gefa okkur hugmyndir um hvenær skal halda svona partý :haha: ég held að það sé alveg rosalega sniðugt ....

Ætla nú ekki að láta þetta vera mikið í dag enda nóg að gera

Hafið það gott og verið duglega að láta fólk vita af þessari síðu og allir verða að kjósa 8)

Adios

Erla S


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 13:53:22 / 10_b_1998

Halló!!!!

Sæl þið öll :lol:

Jæja þá er sumarfríið mitt búið og ég komin við tölvu á ný og verð fljótlega komin netið heim og get þá reynt að finna fleira fyrir okkur það er allt í fullum gír hjá okkur...

Ég vil nú bara óska þeim sem eruð ný komin með börn innilega til hamingju og líka sem eruð með á leiðinni :D

Svo væri náttúrulega gaman að fá að vita hvað þið eruð að gera af ykkur þessa dagana og hvað þið hafið verið að gera sl ár og senda það á mig í maili til að hægt sé að setja það hér inn, svo fer ég að klára bekkina ég er með allt heima og reyni að klára það fyrir helgi :haha: það tekur allt tíma

Látið svo heyra meira frá ykkur elskurnar mínar


» 20 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 21:25:58 / Eva R

Fleiri börn

Lítill fugl var að hvísla að mér upplýsingum um fleiri börn sem við eigum á barnalandi. Ég er búin að bæta þeim í linkana hjá okkur. Það eru Bjartmar Dagur (sonur Marteins), Bumbubúi Helgason/dóttir (ófætt barn Helga Guðjóns), Ólafur Darri (sonur Guðrúnar Sunnu) og Ísak Nói (sonur Daða).

Það er ekkert smá hvað fólk hefur verið duglegt við þetta, maður er bara komin í minnihlutahóp í kringum allt þetta barnafólk ;) En ég á samt kött :haha:


» 21 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 13:06:26 / Eva R

Góðan daginn gott fólk!

Jæja, þá erum við byrjaðar að plana. Þetta lítur allt bara mjög vel út. Stefnum á að reyna að hafa þetta í kringum mánaðarmótin sept-okt. Erum að vinna í því að fá sal, erum með nokkra í huga en ef þið vitið um einhverja góða á góðu verði megið þið endilega láta okkur vita :)

Þetta verður makalaust partý í vonandi öllum skilningi orðsins :D Nema kannski fyrir Siggu og Egil Sölva, þá verður þetta ekki makalaust að því leyti að þau eru makar hvors annars og mega bæði koma ;) (þau eru eina parið sem ég veit um úr þessum árgangi, ef það eru fleiri biðst ég velvirðingar á fávisku minni í þeim málum...8|)

Svo ef þið viljið fá aðgang að síðunni eða bara vera í bandi þá eru emailin okkar erlan82@hotmail.com">perlan82@hotmail.com og eva_sig@hotmail.com
Erla Perla er í sumarfríi eins og er og einhver ferðalög á henni og er með takmarkaðan internet aðgang þessa daganna þannig að ef ykkur liggur á að fá aðgang þá gengur það líklega hraðar fyrir sig í gegnum mig :haha:

Það væri gaman ef sem flestir myndu skrifa nokkrar línur hérna inn um sína hagi og líf sitt eftir Árbæjarskóla :)

Held að þetta sé þá bara komið í bili, þar til næst...

kv. Eva


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 09:19:45 / 10_b_1998

Allt í vinnslu

Sæl þið öll

Þá hef ég klárað loksins að gera bekkjarlistana klára og fundið út hvar þið öll eigið heima múhahahaha.... en þess má geta að þegar ég var að taka þetta saman þá var þetta dáldið fyndið hvað allir grúbba sig saman í sama hverfi í sumum bekkjum 105 hverfið er dáldið vinsælt en það er hægt að segja frá því að af okkur 159 nemendum eru 46 sem hafa sama lögheimili og 7 af okkur búa erlendis samkvæmt þjóðskrá skemmtilegar fréttir :D

En um þessa helgi ætla ég að reyna að koma inn bekkjunum eins og þeir voru og vinnan fer að fara á fullt skrið og óska ég eftir fleira fólki til að vera með í þessari skipulagningu.... :P Ég hef hugsað það þannig að fólk skrifi lítið um sig á síðuna um hvað þau hafi verið að bralla sl ár.... og segi smá ævisögu í stuttumáli :haha:

Sólin er loks farin að skína enda er ég að fara í sumarfrí og fer þá undirbúningurinn á meira skrið en ég sit til dæmis í vinnunni minni núna og er að skrifa þetta enda ekkert að gera hjá mér hummm skrítið enda mikil tilhlökkun að fara í frí !!!

Endilega komið svo með tillögur á hvað sé hægt að gera og endilega munið að láta slóðina ganga á milli svo allir geti tekið þátt 8)

See  ya

Erla S


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 13:53:12 / 10_b_1998

Tíminn flýgur

Jæja þá er ein komin í aðstoð með mér og má ég bara til með að segja að bjóða þig velkomna Eva mín :) en þess má geta að þetta er hún Eva Rós :D þið eruð svo margar elskurnar

En þá er spurning er ekki til fleiri manneskjur sem vilja vera með ? Ef svo er þá mæli ég með að við hittumst fljótlega í skemmtilegum hitting og plönum eitthvað skemmtilegt saman ..... enda komin tími á það það eru alveg 10 ár síðan við fermdumst svo það er komin tími á að við gerum eitthvað

Áfram með ykkur svo mig vantar fleiri sjálfboðaliða :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 09:34:58 / 10_b_1998

Júlí komin !!!

Sælt veri fólkið

Nú er fyrsta helgin í júlí afstaðin og vona að fólk  hafi bara skemmt sér vel :D

Ég hef verið að hugsa um hvað við ættum að gera ?

- Hafa reunion bara við krakkarnir?

- Hafa útileigu og makar koma með + börn?

Það er alltaf gaman að fá einhverjar tillögur... :lol: og væri ég vel til í að fá einhverja með mér í þennan undirbúnig því þetta er ekkert það léttasta held ég eða hvað?

Steinunn hvernig væri að þú kæmir með mér í þetta? og einhverjir 2 strákar með Jói þú ert svo vanur þú kannt á þetta, eða bara einhver sem bíður sig fram með mér? Sigga hvernig væri að þú kæmir líka endilega einhverjir að koma með

Látum svo slóðina á síðuna ganga áfram svo sem flestir sjái hvað um er að vera....

Adios

Erla S :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 14:13:32 / 10_b_1998

Ef það vantar fleiri börn endilega látið mig vita ...

Mig vantar að vita hvað við erum með mörg börn í þessum hóp og ef þessi æðislegu börn eru með heimasíðu þá má alveg láta mig vita svo við getum haft þetta allt saman og fylgst með hvort öðru :D

kveðja

Erla S:haha:

 ofurskrifari sem vantar fleira fólk með sér í bloggið 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2